Vísindavaka nær til eftirfarandi hæfniviðmiða úr aðalnámskrá greinarsvið frá 2013. Auk hæfniviðmiða má tengja ýmsa lykilhæfni við verkefnið.
Náttúrugreinar
Við lok 7.bekkjar getur nemandi:
- unnið undir leiðsögn í hópi eftir verkskiptri tímaáætlun við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi,
- gert sér grein fyrir mikilvægi gagna og líkana við að útskýra hluti og fyrirbæri,
- lesið og skrifað um hugtök í náttúruvísindum,
- framkvæmt og útskýrt einfaldar athuganir úti og inni,
- aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr efni á öðru tungumáli en íslensku,
- beitt vísindalegum vinnubrögðum við öflun einfaldra upplýsinga innan náttúruvísinda og útskýrt ferlið,
- kannað áreiðanleika heimilda með því að nota bækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur,
- sett fram og rætt niðurstöður athugana á skýran og skipulegan hátt,
- hlustað á, metið og rætt hugmyndir annarra.
Við lok 10.bekkjar getur nemandi:
- tekið þátt í skipulagi og unnið eftir verk- og tímaáætlun hóps við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi,
- metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað á skýran hátt,
- beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins,
- framkvæmt og útskýrt sérhannaðar eða eigin athuganir úti og inni,
- aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum,
- beitt vísindalegum vinnubrögðum, s.s. tilraunum og athugunum á gagnrýninn hátt, við öflun upplýsinga innan náttúruvísinda,
- kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur,
- gefið skýringar á og rökrætt valið efni úr athugunum og heimildum,
- dregið ályktanir af gögnum og gefið ólíkar skýringar með því að nota ólík sjónarhorn.
Íslenska
Við lok 7. bekkjar getur nemandi:
- tjáð sig skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar,
- tjáð eigin skoðanir og tilfinningar og haldið athygli áheyrenda,
- hlustað af athygli og beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það sem sagt er og greint frá aðalatriðum.
Við lok 10.bekkjar getur nemandi:
- flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og hefur tileinkað sér viðeigandi talhraða og fas,
- gert sér grein fyrir eðli góðrar framsagnar og framburðar og nýtt leiðbeiningar um framsögn, svo sem um áherslu, tónfall, hrynjandi og fas og lagað það að viðtakanda,
- hlustað, tekið eftir og nýtt sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks og skemmtunar.